Vel heppnuð vorráðstefna

jún 1, 2026

Ný tækni og gervigreind í úrgangsmálum var yfirskrift vorráðstefnu FENÚR og fróðleg erindi og umræður um framtíðina var áberandi. Ljóst er að margt er að breytast og mikilvægt að miðla af reynslu. Margir eru að prófa nýja tækni í aðgangskortum, snjallgámum og nýjum möguleikum og gervigreindarlausnum og gott að koma saman og ræða áskoranir og tækifæri í þeim efnum.

Fyrir vorráðstefnu var haldinn aðalfundur. Starfsemi FENÚR á starfsárinu 2025–2026 einkenndist áfram af áherslu á eflingu hringrásarhagkerfis, endurnotkunar og aukinnar þekkingar á sjálfbærri auðlindanýtingu.

Stjórn félagsins hélt reglulega fundi á starfsárinu þar sem fjallað var um starfsemi félagsins, þróun í úrgangs- og auðlindamálum, samstarfsverkefni og undirbúning viðburða á vegum félagsins.

FENÚR lagði áfram áherslu á að vera vettvangur fyrir umræðu og miðlun þekkingar milli sveitarfélaga, fyrirtækja, stofnana og einstaklinga sem starfa á sviði umhverfis- og auðlindamála.

Félagið tók þátt í opinberri umræðu um framtíð úrgangsmála og mikilvægi þess að skapa sterkari hvata fyrir endurnotkun og bætta auðlindanýtingu. Þá fylgdist stjórn félagsins með þróun reglugerða og stefnumótunar bæði innanlands og á vettvangi Evrópusambandsins sem hefur sífellt meiri áhrif á íslenskt regluverk á þessu sviði.

Undirbúningur og framkvæmd vorfundar og ráðstefnu félagsins var stór þáttur í starfi ársins. Markmið ráðstefnunnar er sem fyrr að skapa vettvang fyrir miðlun reynslu, nýrra lausna og umræðu um þau tækifæri og áskoranir sem blasa við í umhverfis- og auðlindamálum.

Haustfundur breyttist í áhuagverða fræðsluferð – Fræðsluferð Fenúr tókst vel og var bæði skemmtileg og upplýsandi. Skemmtilegur hópur sem átti góða stund saman og þeysireið um bæinn.

Heimsóttum hreinsistöð hjá Veitum við Klettagarða; þetta er mun stærri og meiri stöð en maður gerir sér grein fyrir. Var mikið framfaramál á sínum tíma og þarna fer fram umfangsmikil hreinsun á úrgangi sem ekki allir gera sér grein fyrir. Þarna safnast ristarúrgangur, fita og mengaður jarðvegur og þar myndast mikilvæg tenging við önnur úrgangsfyrirtæki. Þarna eru því mikil tækifæri og áskoranir um frekara samstarf. Framundan er mikil breyting á öllu regluverki og stór innviðauppbygging sem kallar á víðtækt samstarf og hringrásarhugsun.

Stjórn félagsins vill færa félagsmönnum, samstarfsaðilum og öllum þeim sem hafa stutt starf félagsins á árinu kærar þakkir fyrir gott samstarf og mikilvægt framlag.

Ljóst er að mikilvægi hringrásarhagkerfis og sjálfbærrar nýtingar auðlinda mun áfram aukast á komandi árum og telur stjórn FENÚR að félagið hafi mikilvægu hlutverki að gegna í þeirri þróun.

Ný stjórn var kjörin; Freyr Eyjólfsson situr áfram sem formaður, Lilja Þorsteinsdóttir sem gjaldkeri og Steinar Sigurjónsson sem ritari. Við bætast í stjórn Karen Jónasdóttir og Bergrún Ósk Ólafsdóttir.