Velkomin á Nordic Biogas 2026
Nordic Biogas ráðstefnan verður haldin í Reykjavík dagana 2.–4. september 2026. Ráðstefnan er frábært tækifæri til að hitta fyrirtæki, rannsakendur og opinberar stofnanir sem koma að þróun lífgaslausna á Norðurlöndunum og víðar.
Þetta er í tíunda sinn sem ráðstefnan er haldin og búist er við allt að 200 þátttakendum sem munu kynna sér og ræða nýjustu þróun á sviði lífgass.
Á Nordic Biogas Conference 2026 verður fjallað um nýjustu þróun og framtíðarhorfur í ört vaxandi lífgasiðnaði. Lífgas gegnir sífellt fjölbreyttara hlutverki – ekki aðeins með því að tryggja græna orku og aukið orkuöryggi fyrir ýmsa geira, heldur einnig með framleiðslu á grænum áburði fyrir landbúnað og lífrænum koltvísýringi (biogenic CO₂) sem nýta má til kolefnisgeymslu og framleiðslu rafeldsneytis (e-fuels) fyrir þungaflutninga, skip og flugvélar.
Ráðstefnan samanstendur af sameiginlegum málstofum og samhliða fundum þar sem leiðandi fulltrúar fyrirtækja, háskóla- og rannsóknasamfélagsins og opinberra stofnana taka þátt. Einnig verður boðið upp á ráðstefnukvöldverð, sýningarsvæði, veggspjaldasýningu rannsókna, vettvangsferð og fjölmörg tækifæri til tengslamyndunar og samtals milli þátttakenda.