Aðalfundur FENÚRAðalfundur FENÚR verður haldinn mánudaginn 28. september kl.10.00 í fundarsal Sorpu á Gufunesi.
Dagskrá aðalfundar:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Kosning í stjórn, aðal- og varamenn
3. Önnur mál
Fundurinn verður einnig sendur út rafrænt, aðildarfélagar geta sent tölvupóst á netfangið fenur@fenur.is og fá þá senda slóð á fundinn.
Í framhaldi af aðalfundi verður boðið í skoðunaferð um GAJU, gas- og jarðgerðarstöð Sorpu.
Bóka þarf þátttöku í skoðunarferðina þar sem sætafjöldi er takmarkaður vegna covid, sendið töluvpóst á netfangið fenur@fenur.is til að skrá þátttöku í skoðunarferðina.