Árangur og markmið
Vorráðstefna Fenúr fór fram þann 18.mars síðastliðinn.
Yfirskriftin í ár var árangur og markmið, við gerðum upp 2023, ár innleiðingar nýrrar löggjafar og skoðuðum hvað væri framundan í úrgangsmálum á Íslandi.
Ráðstefnustjóri var Freyr Eyjólfsson, verkefnastjóri hringrásarhagkerfis hjá Sorpu.
- Af öskuhaugum sögunnar – Stefán Pálsson sagnfræðingur flytur erindi í ruslflokki
- Það sem við lærðum og það sem við eigum ólært – Margrét Kjartansdóttir samskiptafulltrúi Úrvinnslusjóðs
- Árangur sveitarfélaga við innleiðingu nýrra laga – Hugrún Geirsdóttir sérfræðingur í umhverfismálum hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga
- Úrgangur á landsvísu og í sveitarfélögum – Rakel Kristjándsóttir sérfræðingur lofslags og hringrásahagkerfis hjá Umhverfisstofnun