Vorráðstefna FENÚR 2023 – Byggjum upp hringrásarhagkerfi.
Vorráðstefna FENÚR verður haldin fimmtudaginn 30. mars milli kl. 10.00 – 15.00 í Gullhömrum, Þjóðhildarstígur 2-6, 113 Reykjavík.
Eitt mikilvægasta samfélagsmál næstu ára er uppbygging innviða í átt að hringrásarhagkerfi. Mikið verkefni en sömuleiðis tækifæri og áskoranir fyrir atvinnulíf og sveitarfélög. Sömuleiðis eru mikil tækifæri í ábyrgi kolefnisjöfnun og kolefnisbindingu þegar kemur að endurvinnslu. Þetta ætlum við að ræða og skoða á vorráðstefnunni.
Áhugaverð erindi frá okkar helstu sérfræðingum ásamt fjölbreyttum umræðum um helstu áskoranir næstu ára. Meðal erinda verða:
Dagskrá milli 10:00 – 11:00
- Karl Eðvaldsson, stjórnarformaður Fenúr. Opnun
- Að byggja upp hringrásarhagkerfi – ráðherra. Guðlaugur Þór Þórðarson
- Hvar stöndum við? Hvað þurfum við? Hvernig komust við þangað? Hvað kostar það? Mat út frá svæðisáætlunum. Stefán Gíslason.
Pallborð 1 – Innviðir sveitarfélaga; verkefni, tækifæri og áskoranir. (kjörnir fulltrúar verða í pallborði)
- Blámi. Metanorkuver á Vestfjörðum. Anna María Daníelsdóttir.
- ÝMIR Technologies, Hönnun og þróun tæknibúnaðs fyrir úrgang. Sigurður Ingólfsson
- Líforkuver í Eyjafirði. Guðmundur H. Sigurðarson.
Pallborð 2 – Innviðir atvinnulífsins; verkefni, tækifæri og áskoranir.
- Ábyrg kolefnisjöfnun. Kolefniseiningar og endurvinnsla. Haukur Logi Jóhannsson, Staðlaráð.
- Kolefniseiningar – framtíð og möguleikar. Súrefni. Aríel Jóhann Árnason.
Almennar umræður og spurningar úr sal
Karl Eðvaldsson. Lokaorð stjórnarformanns.
Ráðstefnustjóri verður Freyr Eyjólfsson, Verkefnastjóri hringrásarhagkerfisins hjá SORPU
Pallborðsumræðum stýrir Eygerður Margrétardóttir, sérfræðingur í umhverfis- og úrgangsmálum hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Boðið verður upp á kaffi veitingar og hádegismat á ráðstefnunni.
Ráðstefnunni verður einnig streymt.
Skráning og upplýsingar um ráðstefnugjald finnur þú hér: https://forms.gle/i1XB2tA7dJgJa1FD9
Verið velkomin
FENÚR