Starfsáætlun

Starfsáætlun 2026

 

FENÚR stefnir á að halda að minnsta kosti þrjár ráðstefnur á árinu þar sem tekin verða fyrir ákveðin málefni. Vorfundur og haustfundur og sérstök ráðstefna um urðun þann 20. mars ásamt Resourece og SORPU. Reglulega eru haldnir opnir fundir undir yfirskriftinni: Hvað er að frétta? Þar fær eitt fyrirtæki eða félag að kynna starfsemi sína og opna umræður um ákveðin málefni sem brenna á fólki. 

FENÚR veitir stjórnvöldum umsagnir og leiðbeiningar um mál er varða málefni og markmið félagsins.

FENÚR mun viðhalda vefsíðu félagsins og ráðast í endurbætur ef þörf krefur.
FENÚR í samvinnu við Umhverfis- og orkustofnun vinnur áfram að innleiðingu og útbreiðslu samræmdra norræna merkinga fyrir flokkun úrgangs innanlands í með félagsmönnum, ríki, sveitarfélögum, framleiðendum og öðrum haghöfum.

.

Vertu með

Lítil og stór fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög, einstaklingar og félagasamtök

eru aðilar að Fenúr. Það er til mikils að vinna og við erum sterkari saman.

Vertu með!

Skráning